Íslensk menning á alnetinu

Rokkstjörnurnar Ulrike, Andreas og Gudrun
Á áttunda áratug síðustu aldar, sem sumir kjósa að kalla seventís-tímabilið, var gríðarleg þjóðfélagsleg ólga í Evrópu. Olíukreppa hleypti efnahagsmálum í bál og brand, hryðjuverkahópar blómstruðu og Leeds United komst í úrslit Evrópukeppni bikarhafa í fótbolta. Síðastliðið sunnudagskvöld sýndi sjónvarp allra landsmanna ágæta svipmynd af þessum tíma, Der Baader Meinhof Komplex, en sú mynd fjallar um vestur-þýsku hryðjuverkasamtökin Rauðu herdeildina (Rote Armee Fraktion), sem sumir kölluðu Baader-Meinhof hópinn.

Ef ég má nota klisju sem fer vonandi hringinn þá greip þessi mynd mig heljartökum. Sagan hefst kringum stúdentamótmælin 1968 og færir áhorfandann strax inn í andrúmsloft andstæðna. Annars vegar eru hin ráðandi öfl sem steypa fólk í sama mótið, viðhalda misskiptingu og kúgun og senda unga menn yfir hálfan hnöttinn í árásarstríð. Hins vegar eru hugdjörf ungmenni sem sjá á endanum enga leið aðra en vopnaða baráttu til að fylgja sannfæringu sinni um réttlátt þjóðfélag.

Eða kannski ekki svo hugdjörf. Andreas Baader birtist hér ekki sem hugmyndafræðingur heldur sem ábyrgðarlaus frekjuhundur. Gudrun Ensslin er eins og hippadrottning sem breytist í ofbeldisfól. Eftir stendur tvíburamóðirin og blaðamaðurinn Ulrike Meinhof, sem yfirgaf fjölskyldu sína en uppskar beisklegan aldurtila í Stammheim-fangelsinu, hvort sem það var fyrir eigin hendi eða annarra.

Góðar myndir um sögulega atburði eru eins og harmleikir sem vekja áhorfendur til umhugsunar um rétt og rangt. Meira að segja aðstandendur fórnarlamba Rauðu herdeildarinnar eru ósammála um sjónarhorn Der Baader Meinhof Komplex. Einn segir hana sýna blóðþyrsta morðingja, annar er reiður yfir rokkstjörnuímynd hryðjuverkamanna. Þá er takmarkinu náð.

Bíó í betrekksins fjötrum
Maður 1 á vínveitingastað (afar skýrmæltur): „Heyrðu, maður. Ég þori að veðja að ég get skverað þessa dömu þarna á barnum.“

Maður 2 á vínveitingastað (einnig afar skýr­mæltur): „Nú, jæja? Þorirðu kannski að veðja þúsara?“

Maður 1 á vínveitingastað: „Gott og vel.“

Einhvern veginn þannig, með samræðum sem minntu á hádegisleikrit, hófst annar kaflinn í sögu íslenskrar kvikmyndagerðar. Ekki þótti lengur sæmandi kvikmyndaþjóð á uppleið að bjóða upp á afdali, haglabyssur, blóðskömm og hestaskít. Landinn var löngu fluttur úr fjósinu á mölina og loksins skyldi bíóið endurspegla það.

Í stað alltumlykjandi hallæris birtist nýi tíminn þannig einkennilega skýrmæltur. Vandinn var bara sá að ein klisja tók við af annarri. Einbeittur ljótleikinn vék fyrir enn einbeittari tilgerðar­kúlheitum. Þess vegna höfum við í nær tvo áratugi búið við þrúgandi offramboð kvikmynda sem fjalla um fulla og dópaða Reykvíkinga á þrítugs­aldri að eðla sig, gjarnan slettandi fúkyrðum á ensku eins og til að breiða yfir leiklistarmenntun túlkendanna. Mig grunar að ráðamenn í ferðaþjónustu hafi haft hönd í bagga, ef svo sveitalega má að orði komast, því nafn höfuðborgarinnar okkar eitursvölu og jafnvel póstnúmer hennar hafa verið óheyrilega vinsæl í titlum bíómynda. Myndirnar hafa síðan oft verið eins og ferðabæklingar á hvítu tjaldi, þar sem menn sveima frá grúví sukki niðri í bæ út á strönd sér til hressingar, birtast í Kolaportinu og eru fyrr en varir sofnaðir værum blundi uppi á jökli. Þessi bylgja sem enn stendur yfir náði hápunkti í Fóstbræðra­þættinum „Íslensk bíómynd“, sem allir ættu að sjá með einhverjum ráðum. Ríkisútvarpinu þakka ég kærlega fyrir að sýna hinar myndirnar til að gæta samhengis.

Fjölnir í flúrtúr til Færeyja
Fyrir skemmstu sýndi Ríkisútvarpið heimildarmynd um ferð Fjölnis Bragasonar og félaga til Færeyja og til baka. Efniviðurinn var allur í töffaralegri kantinum; tattú, þungarokk, leður og mótorhjól vikurnar í kringum hina fornu gleði Ólafsvöku.

Fyrst var samt að komast á staðinn, en siglt var með Norrænu frá Seyðisfirði. Sá hluti myndarinnar var afspyrnu leiðinlegur, enda virtist Fjölnir einkennilega stressaður og talaði í klipptum svalheitum um ekki neitt. Kannski var hann bara sjóveikur. Áfram hélt myndin með döprum og innihaldslitlum atriðum, þar sem lægst bar samræður um topplausa stúlku á dagatali sem voru eitthvað á þessa leið (þýtt úr ensku): „Er þetta konan þín?” -„Nei, en ég vildi að hún væri það!” Jæja, hvað veit ég, kannski var þetta bara hnyttið.

Síðan fór Fjölnir að elda pasta. Ekki skal ég amast við því en ekki var það heldur grípandi myndefni. Ég var kominn ansi nálægt því að finna mér annað að gera þegar næsta atriði snerist um kaup á sænsku mjólkursúkkulaði úti í kjörbúð en þá snerist allt til betri vegar. Við kynntumst bílasmið í Þórshöfn og rúntuðum með Fjölni og samstarfsfólki hans um eyjarnar frændfólks okkar fögru. Og viti menn, þá komst myndin að eigin kjarna.

Við kynntumst vinnu og list fólksins sem flúrar og gatar; menntaðra myndlistarmanna og sjúkraliða. Við sáum húðflúr sem jafnvel ferkantaða skrifstofublókin ég, gjörsamlega óflúraður og áhugasnauður um allt slíkt, samþykkti fúslega að væru frábær listaverk og búkprýði. Við sáum verkfærin og handbragðið og allt í einu rifjaðist upp gamall sannleikur. Ef fagfólk miðlar þekkingu sinni af áhuga og í einlægni verður útkoman alltaf áhugaverð. Þetta skildi ég fyrst þegar ég ánetjaðist sendingum frá fimleikum kvenna á Ólympíuleikunum í Seúl 1988 en það er allt önnur saga og minna rokkuð en sagan af Fjölni í Flúreyjatúrnum.

Heiður fjölskyldunnar framar öllu
Um þessar mundir rifja sjónvarpsunnendur upp Guðföðurþríleikinn eftir Francis Ford Coppola, ekki í fyrsta skipti og þaðan af síður það síðasta. Þegar fyrsta Guðföðurmyndin kom í kvikmyndahús á því ágæta ári 1972 varð hún sígild í sömu andrá, slíkur var slagkraftur sköpunarverksins. Coppola var að skapa sér nafn sem leikstjóri á þessum árum en leikaralistinn var svakalegur: Marlon Brando, James Caan, Diane Keaton, Robert Duvall, Sterling Hayden og Talia Shire. Svo var þarna líka snaggaralegur ungur leikari, Al Pacino að nafni. Dágott efni.

Guðfaðirinn var eins og þriggja klukkustunda „hrað”námskeið í skuggahliðum ítalska þjóðarbrotsins í Bandaríkjunum. Myndin fræddi um skipulagsfræði mafíunnar og orðfæri, hvað það þýðir að sofa með fiskunum og hve mikilvægt það er fyrir don að hafa öflugan consigliere sér við hlið. Áhorfendur lærðu hvernig valdamiklir menn tala, hvernig þeir þegja, hvernig þeir yppa öxlum og hvernig þeir leggja áherslu á mál sitt. Guðfaðirinn sjálfur, Vito Corleone, var á margan hátt fyrirmyndarborgari; hann var fjölskyldumaður og kattavinur sem lagðist gegn útbreiðslu fíkniefna. Hann fyrirskipaði vissulega morð á andstæðingum sínum, en eins og sonurinn Michael benti á gerðu pólitíkusarnir það líka.

Nú, tæpum fjörutíu árum eftir að Guðfaðirinn birtist fyrst á tjaldinu, á mafían sérstakan sess í hjörtum Bandaríkjamanna og annarra jarðarbúa. Mafíumyndir eru sérstök listgrein, rétt eins og myndir um fjöldamorðingja eða Elvis-myndir. Enginn gerir staðlaða mynd um grísk eða filippseysk glæpasamtök. Tony Soprano hefði tæplega haldið athygli sjónvarpsfíkla sem sænskur glæpaforingi, þótt sálfræðikreppa hans hefði getað sómt sér vel í gulbláum sósíalrealisma. Orðið mafía, sikileyskt að uppruna eins og Corleone-fjölskyldan, er orðið samheiti um skipulögð glæpasamtök hvar sem þau starfa og hvaðan sem þau koma. Samt kemur orðið hvergi fyrir í Guðföðurmyndunum. Þetta var jú bara fjölskyldufyrirtækið.

Með desibelin að vopni
Hugsaðu þér, ágæti lesandi, að þú sért að horfa á fréttir í sjónvarpi. Á eftir „venjulegum” fréttum eru sagðar fréttir af íþróttum. Einn eða annar íþróttamaður vann eða vann ekki hitt eða þetta mótið og eitt lið vann annað með þessum mun. Finnst þér stundum erfitt að meðtaka slíkar upplýsingar? Viltu nánari útskýringu? Kannski getur þá eftirfarandi lýsing, fram borin á hæsta hljóðstyrk af kófsveittum og óðamála íþróttamanni, orðið þér til glöggvunar á framvindu mála:

„SKO VIÐ BARA ÆTLUÐUM NÁTTÚRLEGA BARA AÐ TAKA ÞETTA OG VIÐ VISSUM AÐ ÞAÐ YRÐI ERFITT ÞEIR ERU BÚNIR AÐ VERA ÖFLUGIR Í VETUR EN VIÐ ERUM MEÐ FRÁBÆRA STRÁKA OG VIÐ VILDUM ÞETTA MEIRA OG VIÐ ÆTLUÐUM BARA AÐ GEFA ALLT Í ÞETTA OG KOMA BRJÁLAÐIR Í ÞETTA OG KLÁRA DÆMIÐ OG ÞAÐ TÓKST!”

Þá liggur allt ljóst fyrir. Liðsmenn viðmælandans ætluðu sem sagt að vinna leikinn. Þeir vissu að það yrði erfitt. Andstæðingarnir höfðu staðið sig vel á keppnistímabilinu. Félagar viðmælandans eru hins vegar frábærir og höfðu meiri sigurvilja. Þeir hugðust fyrir leikinn leggja sig alla fram, virkja keppnisskapið og bera sigur úr býtum. Það tókst.

Viðtöl af þessu tagi eru bráðnauðsynlegt ítarefni íþróttafrétta eins og hér hefur verið sýnt fram á, því aldrei er einföldum staðreyndum hampað um of. Þessi viska hefur því miður verið á undanhaldi síðustu ár í umfjöllun um knattspyrnu, sem er farin að snúast um hluti sem eru ekki þegar augljósir hverjum íþróttaáhugamanni. Í gamla daga voru fótboltalýsingar í sjónvarpi eins og fótboltalýsingar í útvarpi. „Jói, með boltann á miðjunni, gefur á Gumma á kantinum, hann gefur á Óla sem er frammi, en hann missir boltann út af.” Nú er hins vegar lagt í margra klukkutíma þætti þar sem gelbornir súkkulaðidrengir þusa um íþróttina eins og hún væri póstmódern geimvísindi. Mér þykir miður að málum sé svo komið og kalla hér eftir afturhvarfi til gamalla og góðra gilda.

Sýnishorn, kynningar, brot, treilerar, stiklur
Í gamla daga var allt svo einfalt. Og gott. Þá fór maður bara í bíó, keypti sér popp og kók, settist og horfði á myndina. Svo fóru stjórnendur (eða rekstraraðilar) kvikmyndahúsa að sýna brot úr öðrum myndum á undan þeirri sem maður kom til að sjá. „Sýnishorn úr komandi myndum“ held ég að þeir hafi kallað þau. Sum sýnishornin voru leiðinleg, önnur áhugaverð. Sum voru svo áhugaverð að maður lokaði augum og eyrum til að eyðileggja ekki væntanlega upplifun næstu bíóferðar. Svo gengu mógúlarnir á lagið og lengdu sýnishornin, þangað til þau voru jafnvel í mörgum hlutum sem hver hafði upphaf, miðju og endi. Í dag má jafnvel spara stórfé með því að fylgjast vel með áður en aðalmyndin byrjar, því sýnishornin eru mörg hver orðin eins og stuttmyndir sem innihalda alla bestu bitana.

Svo fóru markaðsmeistarar kvikmyndahúsanna að bæta venjulegum auglýsingum framan við bíóauglýsingarnar en það er nú önnur saga.

Enn önnur saga er hvaða orð á að nota yfir sýnishornin, því orðið sýnishorn hef ég aldrei heyrt notað um sýnishornin í daglegu máli. Kannski var það notað í gamla daga, hvað veit ég. „Hafið þér séð sýnishornið af Á hverfanda hveli, sem væntanleg er í kvikmyndahús? Sannarlega hyggjum vér að Clark Gable muni fara þar á kostum!“ Jújú, það hljómar bara sannfærandi fyrir sinn hatt. En hvað með síðari tíma? Kynningar? Neeh. Brot? Æi, nei. Árum saman var orðskrípið treiler notað um fyrirbærið; ill­meltanlegt orð úr ensku yfir tengivagn. En viti menn, allt í einu stekkur fram hið frábæra orð stikla. Já, auðvitað! Stiklur eru þær og stiklur skulu þær heita. Farsæl endalok.

He! Hehe! Hehehe! Hö! Hö! Hö! Kúl!
Þvílík og önnur eins uppskrift að sjónvarpsþætti. Tveir illa teiknaðir kvartvitar á táningsaldri sitja fyrir framan sjónvarpið og röfla um tónlistarmyndbönd, flissandi og gjammandi á víxl. Stundum mæta þeir í skólann, með engum árangri. Stundum mæta þeir í vinnuna, á hamborgarastað, og gera ekkert af viti þar heldur. Stundum plaga þeir nágranna sína með ósiðlegum uppátækjum. Aðallega sitja þeir þó við imbann.

Sennilega er vonlaust að útskýra menningarlegt gildi þáttanna um Beavis og Butt-head fyrir vantrúuðum. Oftar en ekki hafa þeir hlotið þann dóm að þeir séu barnalegir. Vissulega er það rétt að stundum voru yfirlýsingar þeirra félaga ekki efnismeiri en fyrirsögn þessa pistils. Ósjaldan rataðist þeim hins vegar satt orð á munn, eins og þegar Beavis, í hlutverki hliðarsjálfsins Hins mikla Cornholio, mælti: „Enginn fær flúið eigin rass.” Stundum voru pælingar þeirra jafnvel á borð við gátur zen-meistara, eins og þegar þeir sáu leiðinlega indíhljómsveit spila í skógarrjóðri og veltu vöngum á þessa leið: „Pældíðí, ef þau væru að spila, í skóginum, og tré dytti á þau, af því þau eru glötuð?”

Málsvörn Beavis og Butt-head er í rauninni áþekk seigustu og bestu afsökun listanna gagnvart ásökunum um smekkleysi og innihaldsleysi; þeir eru spegill samtímans. Á fyrri hluta níunda áratugar síðustu aldar fræddu þættirnir okkur um að nóg var í landi hamborgaranna af vitgrönnum lúðum á táningsaldri. Sömuleiðis veittu þeir innsýn í tónlistarsmekk þess þjóðfélagshóps, en upplýsinga af því tagi er einnig þörf nú. Þess vegna, en þó ekki aðeins þess vegna, verður ánægjulegt að sjá Beavis og Butt-head snúa aftur á MTV í sumar og fella dóm yfir Justin Bieber.

Íslendingar eru kristin handboltaþjóð
Íslenska þjóðin hefur í aldanna rás unnið ýmsa sigra sem hún hefur skilgreint sig út frá. Á miðöldum fann Leifur heppni Vínland og Snorri Sturluson og nú óþekktir jöfrar rituðu ódauðleg verk á skinn. Íslendingar voru þá þjóð bókhneigðra víkinga. Kannski hefur sú ímynd enst jafn vel og raun ber vitni vegna þess að lengi vel á eftir gerðu Íslendingar fátt sem vert er til frásagnar, annað en að lifa af í harðbýlu landi gegnum plágur og óáran. Menningarlíf tók kipp á nítjándu öld í kjölfar rómantísku bylgjunnar í Evrópu en vart verður sagt að íslenska þjóðin sem slík hafi verið Fjölnismenn.

Svo kreistum við einhvern veginn fram sjálfstæði á fyrri hluta síðustu aldar og urðum sjálfstæð þjóð. Á seinni hluta aldarinnar unnum við Þorskastríðið með klippum og harðfylgi. Síðan höfum við litið á okkur sem mikla fiskveiðiþjóð. Á níunda áratugnum fékk hópegóið enn væna innspýtingu þegar íslenskir karlar voru þeir sterkustu í heimi og íslenskar konur þær fegurstu. Krafta- og fegurðar­samkeppnir hafa dottið úr tísku síðan þá en hver veit nema margur landinn baði sig enn í frægðarljóma Jóns Páls heitins og/eða Lindu Pé.

Ein lífseigasta skilgreiningin á íslensku þjóðinni er að við séum kristin þjóð. Hún byggir á þúsund ára gömlum merg; ákvörðun heiðingjans Þorgeirs Ljósvetningagoða um að lúffa fyrir hinum nýju trúarbrögðum sem boðuð voru með stuðningi Ólafs Tryggvasonar Noregs­konungs. Lengi vel var hver Íslendingur kristinn samkvæmt skilgreiningu en nokkuð hefur þó verið deilt hin síðustu ár um réttmæti þessarar skilgreiningar. Nú skilgreinir handboltinn okkur, þessi lúterska íþrótt þar sem vinnusemi er í hávegum á kostnað fínheita. Hann fær enginn flúið þessa dagana og telja margir það stjórnarskrárbundna skyldu ríkisins að færa þjóðinni hvern einasta leik landsliðsins, „Strákanna okkar“, í beinni sjónvarps­útsendingu. Kannski er því kominn tími á málamiðlun. Íslendingar eru kristin handboltaþjóð.

Jólasögur á mörkum ljóss og myrkurs
Í þúsundir ára hefur mannkynið hlýjað sér við jólasögur. Eins og sæmir árstíðinni fjalla þær gjarnan um valdaskipti milli myrkurs og ljóss, hvort sem það er í hjörtum mannanna eða veðurfræðilegum raunheimum. Sú frægasta segir af ungum hjónum í Júdeu til forna sem eru á ferðalagi vegna manntals, fyrir daga rafrænnar skráningar. Þau eiga von á barni, sem kemur í heiminn við látlausar aðstæður; Jesús litli fæðist í fjárhúsi og er lagður í jötu. Hann er sagður ljós heimsins en þó eru myrkraöflin ekki langt undan, því fjölskyldan unga neyðist til að flýja til Egyptalands undan konungi sem vill sveininn unga feigan. Þessa sögu má lesa í Biblíunni og hafa ófáar kvikmyndir fjallað um hana.

Á þarsíðustu öld skrifaði enski framhaldssagnahöfundurinn Charles Dickens sögu af karli sem er svo fúllyndur og svartur á sálinni að nafn hans hefur lifað síðan. Það er skröggurinn Ebenezer Scrooge, sem hefur málað sig út í horn og er orðinn ófær um manngæsku eða örlæti. Ein jólin birtast honum andar liðinna, núlíðandi og ókominna jóla, sem sýna honum gleði æskuáranna og þá eymd sem bíður hans nema hann bæti ráð sitt. Skröggur sér ljósið og gerist maður jólanna, gjafmildur og bjartur í sinni. Prúðuleikararnir gerðu þessari sögu góð skil hér um árið.

Loks má nefna spegilmynd sögunnar um Skrögg frá höfundum Blackadder-þáttanna. Þar kynnumst við Ebenezer Blackadder, yfirvaraskeggsölumanni á Viktoríutímanum, sem er vænn maður en gólftuska hin mesta. Honum birtist sú framtíðarsýn að haldi hann áfram á braut meinleysis verði afkomandi hans leðurbrókarklæddur þræll afkomanda fávitans Baldreks, þannig að hann söðlar um og gerist fúlmenni. Þessa sögu ætla ég að rifja upp um jólin til að minna mig á að brugðið getur til beggja vona í ævarandi baráttu ljóss og myrkurs.

Vá, hvað við erum spes – eins og Færeyingar
Ég lít ekki á mig sem hinn dæmigerða staðlaða Íslending. Ég trúi ekki á álfa. Ég borða ekki svið. Mér finnst Bæjarins bestu ekki með merkilegustu veitingahúsum heimsins. Ég hef hvorki sent frá mér skáldsögu né ljóðabók. Ég þekki ekkert verslunarfólk í Dublin eða Glasgow með nafni. Ég hef aldrei beðið kúbanska götutónlistarmenn um að spila Undir bláhimni. Ég keyri ekki um á stökkbreyttum torfærubíl. Ég hef örsjaldan drukkið íslenskt brennivín. Reyndar finnst mér harðfiskur mjög góður. Pönnukökur með sykri og rjóma líka. Ég hef hlustað á eina plötu með Sigur Rós og tvær með Björk. Ég kann textann við þjóðsönginn, svona að mestu. Ekki fer ég samt að syngja hann. Ég er bara norðurevrópsk skrifstofublók.

Kannski er þetta skýringin á óþoli mínu gagnvart sérstakri tegund auglýsinga, þar sem útlendingar eru fengnir til að lýsa því hvað Íslendingar séu svakalega einstakir og æðislegir. Til dæmis þessari með Japananum sem segist elska Ísland og Íslendinga, en þeir séu samt alveg klikkaðir! Mér finnst það líka ósennilegt að barþjónar og dyraverðir um Bretlandseyjar þverar og endilangar skeggræði lundarfar og siði íslenskra gesta í þaula, hvað þá að þeir hafi aldrei vitað jafn ofsafengna áhugamenn um fótbolta. Samt ekki jafn ósennilegt og að bissnessjöfrar á Manhattan veggfóðri skrifstofur sínar með risastórum myndum af Jökulsárlóni.

Kannski trúum við því í alvöru að heimurinn sé agndofa yfir sérstöðu okkar, en ég vona ekki. Við höfum gott af því að leggja til hliðar gamla „How do you like Iceland“ komplexinn og ég er með tillögu þar að lútandi. Spyrjum okkur alltaf: „Virkar þetta í Færeyjum?“ Ef það virkar ekki í Færeyjum virkar það ekki hérna. Á Íslandi búa 320 þúsund manns, í Færeyjum 50 þúsund. Sömu lögmál gilda. Hefði fréttastofan NFS gengið í Færeyjum? Nei. Er grundvöllur fyrir kauphöll í Færeyjum? Tjah. En auglýsingum um sérstöðu lands og þjóðar sem heimurinn allur er upptekinn af? Alveg örugglega ekki. Málið dautt.