Sýnishorn, kynningar, brot, treilerar, stiklur

Í gamla daga var allt svo einfalt. Og gott. Þá fór maður bara í bíó, keypti sér popp og kók, settist og horfði á myndina. Svo fóru stjórnendur (eða rekstraraðilar) kvikmyndahúsa að sýna brot úr öðrum myndum á undan þeirri sem maður kom til að sjá. „Sýnishorn úr komandi myndum“ held ég að þeir hafi kallað þau. Sum sýnishornin voru leiðinleg, önnur áhugaverð. Sum voru svo áhugaverð að maður lokaði augum og eyrum til að eyðileggja ekki væntanlega upplifun næstu bíóferðar. Svo gengu mógúlarnir á lagið og lengdu sýnishornin, þangað til þau voru jafnvel í mörgum hlutum sem hver hafði upphaf, miðju og endi. Í dag má jafnvel spara stórfé með því að fylgjast vel með áður en aðalmyndin byrjar, því sýnishornin eru mörg hver orðin eins og stuttmyndir sem innihalda alla bestu bitana.

Svo fóru markaðsmeistarar kvikmyndahúsanna að bæta venjulegum auglýsingum framan við bíóauglýsingarnar en það er nú önnur saga.

Enn önnur saga er hvaða orð á að nota yfir sýnishornin, því orðið sýnishorn hef ég aldrei heyrt notað um sýnishornin í daglegu máli. Kannski var það notað í gamla daga, hvað veit ég. „Hafið þér séð sýnishornið af Á hverfanda hveli, sem væntanleg er í kvikmyndahús? Sannarlega hyggjum vér að Clark Gable muni fara þar á kostum!“ Jújú, það hljómar bara sannfærandi fyrir sinn hatt. En hvað með síðari tíma? Kynningar? Neeh. Brot? Æi, nei. Árum saman var orðskrípið treiler notað um fyrirbærið; ill­meltanlegt orð úr ensku yfir tengivagn. En viti menn, allt í einu stekkur fram hið frábæra orð stikla. Já, auðvitað! Stiklur eru þær og stiklur skulu þær heita. Farsæl endalok.

Published in: on 16.4.2011 at 09:11  Rita ummæli  

The URI to TrackBack this entry is: http://mmmagnus.wordpress.com/2011/04/16/synishorn-kynningar-brot-treilerar-stiklur/trackback/

RSS feed for comments on this post.

Skildu eftir svar

Fill in your details below or click an icon to log in:

WordPress.com Logo

You are commenting using your WordPress.com account. Log Out / Change )

Twitter picture

You are commenting using your Twitter account. Log Out / Change )

Facebook photo

You are commenting using your Facebook account. Log Out / Change )

Connecting to %s

Follow

Get every new post delivered to your Inbox.