Jólasögur á mörkum ljóss og myrkurs

Í þúsundir ára hefur mannkynið hlýjað sér við jólasögur. Eins og sæmir árstíðinni fjalla þær gjarnan um valdaskipti milli myrkurs og ljóss, hvort sem það er í hjörtum mannanna eða veðurfræðilegum raunheimum. Sú frægasta segir af ungum hjónum í Júdeu til forna sem eru á ferðalagi vegna manntals, fyrir daga rafrænnar skráningar. Þau eiga von á barni, sem kemur í heiminn við látlausar aðstæður; Jesús litli fæðist í fjárhúsi og er lagður í jötu. Hann er sagður ljós heimsins en þó eru myrkraöflin ekki langt undan, því fjölskyldan unga neyðist til að flýja til Egyptalands undan konungi sem vill sveininn unga feigan. Þessa sögu má lesa í Biblíunni og hafa ófáar kvikmyndir fjallað um hana.

Á þarsíðustu öld skrifaði enski framhaldssagnahöfundurinn Charles Dickens sögu af karli sem er svo fúllyndur og svartur á sálinni að nafn hans hefur lifað síðan. Það er skröggurinn Ebenezer Scrooge, sem hefur málað sig út í horn og er orðinn ófær um manngæsku eða örlæti. Ein jólin birtast honum andar liðinna, núlíðandi og ókominna jóla, sem sýna honum gleði æskuáranna og þá eymd sem bíður hans nema hann bæti ráð sitt. Skröggur sér ljósið og gerist maður jólanna, gjafmildur og bjartur í sinni. Prúðuleikararnir gerðu þessari sögu góð skil hér um árið.

Loks má nefna spegilmynd sögunnar um Skrögg frá höfundum Blackadder-þáttanna. Þar kynnumst við Ebenezer Blackadder, yfirvaraskeggsölumanni á Viktoríutímanum, sem er vænn maður en gólftuska hin mesta. Honum birtist sú framtíðarsýn að haldi hann áfram á braut meinleysis verði afkomandi hans leðurbrókarklæddur þræll afkomanda fávitans Baldreks, þannig að hann söðlar um og gerist fúlmenni. Þessa sögu ætla ég að rifja upp um jólin til að minna mig á að brugðið getur til beggja vona í ævarandi baráttu ljóss og myrkurs.

Published in: on 18.12.2010 at 14:42  Rita ummæli  

The URI to TrackBack this entry is: http://mmmagnus.wordpress.com/2010/12/18/jolasogur-a-morkum-ljoss-og-myrkurs/trackback/

RSS feed for comments on this post.

Skildu eftir svar

Fill in your details below or click an icon to log in:

WordPress.com Logo

You are commenting using your WordPress.com account. Log Out / Change )

Twitter picture

You are commenting using your Twitter account. Log Out / Change )

Facebook photo

You are commenting using your Facebook account. Log Out / Change )

Connecting to %s

Follow

Get every new post delivered to your Inbox.